2012

Wednesday, May 26, 2010

Æ - Nei

Sveitastjórnarkosningarnar 2010 eru handan við hornið og allt útlit er fyrir að Bestiflokkurinn muni komast til valda með Jón Gnarr sem borgarstjóra. Bastían bæjarfógeti mun rísa holdi klæddur í ráðhúsi Reykjavíkur, Jón Gnarr velti því fyrir sér í Kastljósinu hvort borgarstjórastaðan væri ekki svipuð og daglegt amstur hjá Bastían bæjarfógeta. Þetta er svo sem allt gott og blessað og hver veit nema Bestiflokkurinn hafi fólk innan sinna raða sem er „best“ til þess fallið að stýra borginni.

Sem starfsmaður hjá Íþróttasambandi fatlaðra með aðstöðu í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal get ég ekki verið annað en áhyggjufullur. Ég fæ ekki betur séð en að í Bestaflokknum séu yfirlýstir anti-sportistar og því miður fæ ég ekki séð hvar íþróttir muni rúmast á stefnuskrá flokksins sem er álíka mikið undur og sólmyrkvi.

Að þessu sögðu á stefnuskrá Bestaflokksins að vera fylgismönnum flokksins nokkur vonbrigði. Nýtt framboð með viðlíka fylgi fyrir kosningar sem heldur spilunum svo þétt að sér að maur í fórsturstellingu kæmist ekki þar á milli hlýtur að vera vonbrigði. Það fær enginn í raun að vita hvað flokkurinn hyggst gera og eftir ítarlega leit á síðu flokksins fæ ég ekki séð að orðið íþróttir komi fyrir einu sinni.

Flokkur með þjóðþekkta listamenn innan sinna vébanda er ekki til þess fallinn að þjóna hagsmunum íþróttahreyfingarninnar og því hef ég gert upp hug minn, ég ætla EKKI að kjósa besta flokkinn.

JBÓ

Wednesday, May 19, 2010

75


Aðeins 75 dagar þangað til flatmögun á Spánarströnd verður að raunveruleika... að því gefnu að E-15 haldi sig á mottunni þann 2. ágúst næstkomandi. Langþráð sumarfrí í góðra vina hópi og golfsettin verða með í för.

Ég var að koma heim frá Svíþjóð á þriðjudagsmorgun eftir allnokkra bið á flugvellinum ytra og þar var maður svo sem ekkert að flagga íslenska passanum í óspurðum fréttum. Gosið ekki alveg að gera sig í PR-málum fyrir okkur Íslendinga.

JBÓ

Sunday, May 09, 2010

Vorverkin

Vorhreingerningunni á svölunum í Skipholti 51 er nú lokið! Guði sé lof. Nú má sumarið hrynja inn í öllu sínu veldi enda vorverkin afar hvimleið í þessu umferðarþunga umhverfi. Í bak og fyrir er þung umferð við blokkina okkar og umferðarúrgangurinn smýgur inn um öll göt og í allar rifur. Við hjónin vorum góða tvo tíma að þrífa svalirnar.

Þetta væri 15 mínútna verk ef rafmagnsbílarnir væru komnir í umferð!

Wednesday, May 05, 2010

Ætti maður að þora í Gnarr?


Er það ráðlegt að gefa Bestaflokknum atkvæði sitt í komandi borgarstjórnarkosningum? Hér eru dæmi um stefnumál flokksins:

Hlusta meira á konur og gamalt fólk
Ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn og aumingja
Ókeypis í strætó fyrir námsmenn og aumingja

Jón Gnarr er búinn að koma borginni í klípu, fólk veit ekki hvort taka skuli framboðið alvarlega eða á gamansömum nótum. Ég hef hef ekki enn gert upp hug minn en nafni Gnarr kemur sterklega til greina hjá mér.

JBÓ