Óheppileg tímasetning!

Kvennalandsliðinu í körfuknattleiks veItir svo sannarlega ekki af stuðningi sem flestra en að mér læðist sá grunur að margir þeir sem ætluðu sér á leikinn fari frekar niður í bæ að fagna silfurhetjunum og er það bara vel. Ekki á hverjum degi sem við vinnum silfur í handbolta á Ólympíuleikum. Það er bara vonandi stelpnanna vegna að hátíðarhöldin standi ekki yfir mikið lengur en klukkustund og svo geta allir haldið landsliðsgleðinni áfram með því að mæta á Ásvelli í Hafnarfirði og styðja stelpurnar til sigurs : )
Býst þó við því að þetta taki aðeins meira en klukkutíma að fagna handboltahetjunum. Vonandi verðum við ekki heimsmeistarar í kvennakanttspyrnu þegar næsti landsleikur kvennakörfuboltaliðsins fer fram hér á landi!
JBÓ
1 Comments:
Svo gleymiru að nefna að konan var að keppa í róðri á sama tíma...
og stóð sig eins og hetja:)
hvar endaðir þú á að vera þessar viðburðarríku klst. á miðvikudaginn?
knús af skaganum Ella
Post a Comment
<< Home